Fréttir
Ný uppfærsla fyrir Nokia N97
Öflug uppfærsla fyrir öflugasta flaggskip Nokia fyrr og síðar
Á NokiaWorld 09 í liðnum mánuði kom fréttatilkynning frá Nokia þess efnis að væntanleg væri nokkuð stór uppfærsla fyrir Nokia N97. Sú uppfærsla er komin og meðal þess sem hún hefur að geyma er:
-Ovi Maps 3.1, með stuðning við þrívíddarkort og aðra virkni
-Öflugri stuðningur við flettingar í valmynd
-Nokia Email fylgir núna með í símanum
-Betri stuðningur í myndavél, bæði fyrir kyrrmyndir og hreyfimyndir
-Betri nýting á minni og rafhlöðu
Uppfærslan nefnist 20.0.019 og er hægt að uppfæra símann í gegnum Nokia PC Suite.



