Fréttir

Að gefnu tilefni vegna fréttar um ofhitnaða rafhlöðu

Leiðbeiningar varðandi rafhlöður sem geta hugsanlega verið gallaðar

Vegna fréttar Ríkisútvarpsins um rafhlöðu sem ofhitnaði í Nokia 6230i þá vill Hátækni koma eftirfarandi ábendingum á framfæri.

Um miðbik árs 2007 kom í ljós framleiðslugalli í ákveðnum hluta af framleiðslu Nokia á BL-5C raflhöðunni sem notuð hefur verið í fjöldamarga síma frá Nokia. Um var að ræða hluta af framleiðslunni sem Matsushita Ltd. í Japan sá um fyrir Nokia en Matsushita Ltd. framleiddi um 46 milljónir af 300 milljónum eintökum af BL-5C fram til ársins 2007.

Um þetta leyti birti Nokia ítarlegar leiðbeiningar á heimasíðu sinni og sömuleiðis voru birtar leiðbeiningar á heimasíðu Hátækni þar sem fólki var bent á hvernig það ætti að snúa sér í þessu máli.

Ljóst var þá að engin af þeim rafhlöðum sem Matsushita Ltd. framleiddi hafi verið í þeim símum sem Hátækni flutti inn til landsins frá Nokia. Ekki er hægt að fullyrða að aðrir endursöluaðilar hafi selt símtæki með þessari rafhlöðu hér á landi.

Fyrir þá sem vilja ganga úr skugga um hvort að BL-5C rafhlaðan sem þeir eru með sé gölluð, þá er hægt að fara inn á síðu hér hjá Nokia og fletta upp rafhlöðunni eftir raðnúmeri og sjá hvort að hún sé hluti af þessari gölluðu rafhlöðu. Smelltu hér til þess að komast inn á síðuna.

Að auki má benda á að í langflestum tilvikum sem að rafhlöður ofhitna eða springa í farsímum að þá hefur verið um að ræða rafhlöður sem hafa ekki verið framleiddar af Nokia.

Nokia fylgir ströngum gæðastöðlum vegna allrar sinnar framleiðslu, hvort sem um er að ræða símtæki, rafhlöður eða aðra aukahluti. Ef einhver vafi leikur á að um gallaða rafhlöðu sé að ræða þá hvetjum við viðskiptavini okkar um að hafa samband við okkur í síma 588 5000 eða með því að senda tölvupóst á nokiahjalp@nokia.is. Einnig er hægt að snúa sér beint til þjónustumiðstöðvar Hátækni í Vatnagörðum 20.

 

 

Opnunartímar

Verslun
Ármúli 26
Sími 522 3040
virka daga 9:30-18 laugardaga 12-17

Þjónustumiðstöð Vatnagarðar 20
Sími 522 3010
virka daga 9-17

Skrifstofa Vatnagarðar 20
Sími 522 3000
virka daga 9-16

Hústæknisvið Vatnagarðar 20
Sími 522 3055
virka daga 9-17

ÞjónustuverHátækni

Opið virka daga 9-17
Smellið hér!


 

Spennandi vörur

HTC_Desire_net

HTC Desire

HTC Desire er frábær snjallsími með 1 GHz Snapdragon örgjörva, Android 2.1 stýrikerfi og HTC SENSE, 3.7" AMOLED snertiskjár, innbyggt GPS, 5 MP myndavél, Wi-Fi, 3G, Bluetooth og margt fleira. Meira
 
LG-42PJ550N

LG 42 tommur HD-Ready 42PJ550N

LG 42PJ550N er 42 tommu HD-Ready Plasma sjónvarp með þunnum sjónvarpsramma. 1366 x 768 punkta upplausn. 600 Hz. Stafrænn móttakari, USB tengi. DivX stuðningur. 2 x HDMI.

Meira
 

 

Leita á vefnum


Útlit síðu:


 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.