Fréttir
Nokia bendir á framleiðslugalla í BL-5C rafhlöðum
Viðskiptavinum stendur til boða að fá rafhlöðum útskipt
Nokia, stærsti farsímaframleiðandi í heimi, hefur bent endursöluaðilum og viðskiptavinum sínum á að hugsanlegur galli sé í hluta af þeim BL-5C rafhlöðum sem eru í umferð á markaðnum í dag.
Rekja má þessar rafhlöður til eins af rafhlöðuframleiðendum Nokia, Matsushita Ltd., sem eru með verksmiðju í Japan. Matsushita Ltd. hefur framleitt um 46 milljónir af þeim rúmlega 300 milljón BL-5C rafhlöðum sem hafa verið framleiddar. Framleiðsla Matsushita Ltd. stóð yfir frá desember 2005 til nóvember 2006.
Einkennin lýsa sér þannig að BL-5C rafhlaðan ofhitnar þegar síminn er í hleðslu. Um 100 tilfelli hafa verið tilkynnt á heimsvísu um slíka ofhitnun. Ekki hefur verið tilkynnt um nein alvarleg slys sem megi rekja til þessarar ofhitnunar.
Þeir notendur sem eru með BL-5C rafhlöður og telja að rafhlaðan sé ofhitna, þá geta þeir farið inn á síðu á Netinu hjá Nokia þar sem hægt er að fletta upp hvort rafhlaðan sé hluti af þeirri framleiðslu. Heimasíðan er www.nokia.com/batteryreplacement
Aftan á rafhlöðunni er 26 stafa framleiðslunúmer og geta notendur slegið það númer inn og séð hvort að rafhlaðan þeirra geti verið gölluð.
Ef rafhlaðan reynist gölluð þá mun Nokia senda viðkomandi nýja rafhlöðu, notendum að kostnaðarlausu.
Allar nánari upplýsingar um þetta mál má finna inn á heimasíðu Nokia,
www.nokia.com/batteryreplacement



