Fréttir
Nokia PC Suite 6.83 er komið út - Styður Windows Vista
Stuðningur við símauppfærslur og betri afritunarvörn eru í þessari útgáfu
Nokia PC Suite, útgáfa 6.83 er loksins komin út. Það sem er nýtt í þessari útgáfu er það að núna er kominn fullur stuðningur við nýja stýrikerfið frá Windows sem nefnist Windows Vista. Að auki bætist við stuðningur við símauppfærslur og lætur Nokia PC Suite núna notendur vita þegar ný hugbúnaðaruppfærsla er fáanleg. Að auki er eitt vinsælasta forrit Nokia PC Suite, Content Copier, búið að fara í talsverða andlitslyftingu og búið að bæta við nýjum valmöguleikum.
Hægt er að hlaða niður þessari nýju útgáfu af vef Nokia, http://www.nokia.com/pcsuite



