Fréttir

Nokia hefur tekið yfir IntelliSync

Styrkir viðskiptalausnir Nokia

Nokia hefur, frá og með 10. febrúar, keypt upp öll hlutabréf í IntelliSync. Kaupin tryggja enn frekar stöðu Nokia á viðskiptatækjamarkaðnum og mun þetta tryggja að notendur Nokia-tækja muni ná að samstilla tækin sín við fleiri hugbúnaðarlausnir. Nokia hefur skuldbundið sig til þess að tryggja það að IntelliSync muni áfram vera í boði fyrir aðrar lausnir, s.s. Palm-lófatölvur og Windows Smartphone.

„Þessi kaup setja Nokia í stöðu sem hefur ekki þekkst áður á þessu markaði, hvað varðar fyrirtækjalausnir á farsímamarkaðnum“, segir Mary McDowell, framkvæmdastjóri Nokia Enterprise Solutions. „Með því að sameina núverandi Nokia-lausnir við leiðandi lausnir frá IntelliSync þá erum við með þann möguleika að geta tengt nánast hvaða tæki sem er, sem keyrir hvaða stýrikerfi sem er, við nánast hvaða gagnalausnir eða gagnagrunnslausnir sem eru í boði í dag á markaðnum.“

Til að fræðast frekar um lausnir frá IntelliSync þá er hægt að skoða heimasíðu IntelliSync og fræðast m.a. um það af hverju 38 af 50 stærstu fyrirtækjunum skv. Fortune eru að nota IntelliSync.

 

 

Opnunartímar

Verslun
Ármúli 26
Sími 522 3040
virka daga 9:30-18 laugardaga 12-17

Þjónustumiðstöð Vatnagarðar 20
Sími 522 3010
virka daga 9-17

Skrifstofa Vatnagarðar 20
Sími 522 3000
virka daga 9-16

Hústæknisvið Vatnagarðar 20
Sími 522 3055
virka daga 9-17

ÞjónustuverHátækni

Opið virka daga 9-17
Smellið hér!


 

Spennandi vörur

HTC_Desire_net

HTC Desire

HTC Desire er frábær snjallsími með 1 GHz Snapdragon örgjörva, Android 2.1 stýrikerfi og HTC SENSE, 3.7" AMOLED snertiskjár, innbyggt GPS, 5 MP myndavél, Wi-Fi, 3G, Bluetooth og margt fleira. Meira
 
LG-42PJ550N

LG 42 tommur HD-Ready 42PJ550N

LG 42PJ550N er 42 tommu HD-Ready Plasma sjónvarp með þunnum sjónvarpsramma. 1366 x 768 punkta upplausn. 600 Hz. Stafrænn móttakari, USB tengi. DivX stuðningur. 2 x HDMI.

Meira
 

 

Leita á vefnum


Útlit síðu:


 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.