Loftræstikerfi
Flaktwoods er leiðandi fyrirtæki á sviði loftræstibúnaðar. Flaktwoods framleiðir nánast allt sem þarf fyrir loftræsatikerfi, allt frá inntökum, stokkakerfi, loftræstisamstæðum, blásurum, loftdreifurum ogfl.
Á heimasíðu Flaktwoods má finna bæklinga yfir flestar þær vörur sem þeir framleiða. Enfremur er hægt að ná þar í valforrit sem eru mikil hjálp fyrir hönnuði við hönnun loftræstikerfa. http://www.flaktwoods.com/
EU loftræstisamstæður eru byggðar upp í einingum og hægt að velja samsetningu á hiturum, kælum, síum og öðrum búnaði eftir þörfum hvers og eins. Þessar samstæður henta vel þar sem ekki er rými fyrir sambyggðar samstæður eða kröfur til kerfishluta eru þannig að þeir rúmast ekki í sambyggðum samstæðunum.
Möguleikar á endurvinnslu varma eru margir þannig að alltaf má koma henna við í kerfum með þessum samstæðum. Samstæðuna er hægt að fá í 23 stærðum fyrir loftmagn frá 720 m3/klst. upp í 122.500 m3/klst.




