Verslun Hátækni hefur frá upphafi verið staðsett í Ármúla 26. Einnig höfum við frá upphafi selt farsímalausnir, fyrst voru það NMT-símar frá Mobira og seinna meir þegar Mobira varð að Nokia og GSM-byltingin hófst árið 1994 þá hófst sala á GSM-símum frá Nokia. Í gegnum árin höfum við bætt við vöruflokkana okkar jafnt og þétt og í dag er Hátækni að selja auk farsíma og aukahluti tengda þeim, sjónvörp, heimabíókerfi, magnara, hátalara, rafhlöður, skrifanlega CD / DVD-diska, minnislykla, harða diska, veggfestingar fyrir sjónvörp, talstöðvar fyrir VHF / UHF og TETRA og margt fleira.
Í verslun okkar starfa færustu sérfræðingar á sínu sviði sem geta aðstoðað þig og veitt ráðgjöf við tækjakaup og uppsetningu á þeim lausnum sem við bjóðum til sölu.
Að auki erum við með glæsilegt sýningarrými fyrir hljóð- og mynd sem heitir Hljómskálinn. Þar sýnum við það allra besta sem er í boði hverju sinni frá okkar framleiðendum og geta viðskiptavinir okkar upplifað einstök hljómgæði sem og myndgæði í háskerpuupplausn.
Kíktu á okkur í Ármúlanum, það er alltaf heitt á könnunni.

