Þjónustuver Nokia á Íslandi sinnir fyrirspurnum frá Nokia-notendum og endursöluaðilum varðandi Nokia-farsíma og tengda aukahluti sem og hugbúnaðarlausnir tengdar Nokia.
Hjá Þjónustuveri Nokia starfa færustu sérfræðingar landsins um Nokia og geta svarað öllum spurningum sem snúa að Nokia-farsímum og aukahlutum.
Meðal þeirra fyrirspurna sem við svörum hjá okkur daglega eru:
-Uppsetning á tölvupósti; fyrir fyrirtæki eða einstaklinga
-Pörun á Bluetooth-heyrnartólum
-Uppsetning á tölvutengingu milli PC-tölvu og Nokia-síma
-Kortauppsetning og stillingar í GPS-virkni Nokia-síma
-Stillingar í símum eins og skjástillingar, sjálfvirkar takkalæsingar, breyting á hringitónum o.s.frv.
Hægt er að senda fyrirspurn í tölvupóst á nokiahjalp@nokia.is eða hringja í síma 588 5000.
Þjónustuver Nokia á Íslandi er opið frá kl. 9 til 17 virka daga.
