Hátćkni í 25 ár Heildsala
Ţjónusta
Hústćkni Verslun
 
Hagnýt ráđ og upplýsingar um farsíma

Hátækni hefur starfrækt þjónustuverkstæði á farsímum síðan árið 1997. Á þessum tíma hefur myndast gríðarlega reynsla í viðgerðum á farsímum og oftar en ekki eru það sömu bilanirnar sem fólk er að lenda í. Hér fyrir neðan má sjá samantekt á því helsta sem getur komið fyrir farsíma og hvernig er hægt að lengja líftíma hans með nokkrum einföldum ráðum.

Almennt
Stundum er um að ræða villur í stýrikerfi símanns sem notandinn getur oft lagfært sjálfur . Á flestum Nokia-símum getur notandinn uppfært stýrikerfið .  Mælum eindregið með að síminn sé alltaf uppfærður með nýjustu útgáfu af stýrikerfi símans  enda eru í flestum tilfellum mörg vandamál löguð með hverri uppfærslu. Einnig getur einfaldur hlutur eins og að endurræsa símann lagað margt sem virðist vera bilað í símanum. Ef síminn lagast ekki við endurræsingu eða uppfærslu er notendum bent á að hafa samband við þjónustuverkstæði Hátækni því stundum er um að ræða bilanir sem eingöngu fagfólk getur fengist við og því er ekki mælt með að notendur opni símann sinn eða skrúfi hann í sundur til þess að skipta um íhluti sem í honum eru, eins og t.d. skjái, takkamottur og annað því tengt. Við slíkan gjörning fellur síminn úr ábyrgð.

Raka- og vatnsskemmdir
Algeng bilun í símtækjum er af völdum raka- eða vatnsskemmda. Raki/vatn er versti óvinur rafmagnstækja, því vatnið leiðir straum og orsakar tæringu. Slíkar skemmdir geta komið til af fjölmörgum ástæðum. Notandinn gerir sér oft ekki grein fyrir að notkun utandyra þegar rignir getur haft varanleg áhrif á virkni símans. Farsímar eru almennt ekki gerðir fyrir notkun við slíkar aðstæður en stundum ákveður notandinn að hringja eða svara símtali án þess að hugsa út í afleiðingarnar.

Lítil börn hafa oft óæskilegan aðgang að farsímum þar sem þeir eru skildir eftir á borðum eða stöðum sem barnið nær að teigja sig til. Það þarf ekki að spyrja að leikslokum þegar barnið er búið að stinga símanum í munninn og vatn vinnur sér leið í gegnum hleðslutengi eða önnur tengi á símanum. Oft áttar fólk sig ekki á og gerir sér enga grein fyrir skaðanum því það sér barnið jafnvel ekki handleika símann.

Raka eða vatnsskemmdir koma ekki endilega fram strax. Bilunar getur orðið vart nokkrum vikum seinna og því skiljanlegt að slík uppgötvun komi notendum stundum í opna skjöldu. Eins og gefur að skilja þá falla raka- eða vatnsskemmdir aldrei innan ábyrgðar og eru því alfarið tjón fyrir notandann, og kostnaður sé tilraun gerð til hreinsunar. Það ber stundum á þeim leiða misskilning að þjónustuverkstæðið græði á því að dæma símtæki  skemmd völdum raka, jafnvel til að geta rukkað meira. Það er alfarið rangt. Að uppgötva rakaskemmd er þvert á móti versta martröð tæknimannsins því slíkar skemmdir eru mjög erfiðar viðfangs og oft engin leið að laga. Stundum getur tæknimaður framkvæmt hreinsun á tækinu í von um að viðhalda eðlilegri virkni símans, en slík viðgerð er aldrei framkvæmd með ábyrgð og í raun engin leið að segja til um hvort viðgerðin muni heppnast eða hversu lengi síminn muni virka eftir á.     

Höggskemmdir
Líkt og með rakaskemmdir geta höggskemmdir komið í ljós jafnvel mörgum mánuðum eftir að síminn varð fyrir hnjaski. Plastefnin sem notuð eru utan um síma í dag eru mjög sterkt og eftirgefanleg þannig að oft sér ekkert á símanum þegar hann er skoðaður að utan, þrátt fyrir að afleiðingar falls séu greinilegar þegar síminn er opnaður. Þegar sími verður fyrir höggskemmdum geta komið sprungur í íhluti eða lóðningar. Þegar loft kemst inn í lóðninguna byrjar hún smátt og smátt að tærast. Bilunin kemur því ekki strax í ljós, og síminn verður viðkvæmari fyrir frekari áföllum.

Aldurskvillar
Bilanir koma til af fleiru en af völdum raka eða höggskemmda. Íhlutir eldast misvel og hætta að virka eða gera ekki nákvæmlega það sem ætlast er til af þeim. Símar hafa gott af smá "uppherslu" alveg eins og bílar, og stilling á tíðni og sendiorku getur gert kraftaverk.

Ábyrgðarviðgerðir
Það er ómögulegt fyrir framleiðendur að ábyrgjast að símar bili ekki á ábyrgðartímanum. Allir símar eru stilltir og prófaðir í verksmiðjunni, en samt getur bilun komið upp seinna. Lóðning getur bilað, stundum endast íhlutir ekki eins vel og til var ætlast og skrúfur geta losnað. Þess konar bilanir falla undir verksmiðjuábyrgðina. Þú kemur með símann á þjónustuverkstæðið, sem sér um að leysa vandamálið.

Ábyrgð á almennum viðgerðum
Við rafeindaviðgerðir tíðkast að gefa 3ja mánaða ábyrgð á almennum viðgerðum. Undantekningar eru þó gerðar á raka- og höggskemmdum. Ábyrgð á almennri viðgerð þýðir þó ekki að síminn sé í fullri ábyrgð í þrjá mánuði eftir að viðgerð fer fram. Aðeins er tekin ábyrgð á þeirri viðgerð sem framkvæmd var eftir bilanalýsingu eigenda. Ef verkstæðið gerir við rafhlöðutengið og stillir símann, getur það ekki borið ábyrgð á því þótt hátalarinn hætti að virka eftir 2 mánuði.

Smelltu hér til ađ nálgast leiđbeiningar fyrir Nokia-vörur