Hátækni í 25 ár Heildsala Þjónusta Hústækni Heilbrigðissvið Verslun
 
Symbian fyrir Nokia

Á þessari síðu er hægt að finna allar helstu upplýsingar um Symbian-stýrikerfið sem Nokia notar í snjallsímana sína. Þessi síða verður uppfærð reglulega þannig að alltaf verður hægt að nálgast upplýsingar um það nýjasta sem er að eiga sér stað með Symbian-stýrikerfið. Einnig er hægt að senda tölvupóst með því að smella hér ef það eru einhverjar fyrirspurnir eða ábendingar.

8. febrúar 2012 - Nokia Belle-uppfærslan er komin til landsins og aðgengileg fyrir alla Nokia-notendur.

Hin langþráða Nokia Belle-uppfærsla er komin og er aðgengileg í niðurhali í gegnum PC-tölvur. Mörg atriði eru frábrugðin í þessari uppfærslu frá því sem var áður í Symbian Anna-útgáfunni af Symbian-stýrikerfinu og eru þetta helstu atriðin sem er búið að breyta í þessari útgáfu:

-Nýtt viðmót - valmyndin lítur allt öðruvísi út og er mun þægilegri og notendavænni en það sem hefur áður sést í Symbian-síma.

-Fleiri heimaskjáir - hægt er að vera með allt að 6 heimaskjái þar sem hægt er að vera með m.a. flýtileiðir inn í tölvupóst, aukaforrit sem eru sett upp í símanum, tónlistarspilara, dagbók, tengiliði og margt fleira.

-Flettivalmynd - búið er að setja flipa efst á biðskjánum þar sem hægt er að draga niður flettivalmynd þar sem hægt er að sjá m.a. ólesin skilaboð, ósvöruð símtöl og komast í t.d. að kveikja og slökkva á Bluetooth og gagnvirkni með einföldum hætti.

Fyrir jól komu Nokia 700 og 701 með Nokia Belle-uppfærslunni og hafa þeir vakið verðskuldaða athygli hérlendis. Búast má við því að þeir símar sem eru uppfæranlegir í Nokia Belle muni á næstu vikum koma beint frá verksmiðjum Nokia með þessari uppfærslu þannig að allir nýir Symbian-símar frá Nokia verða með Nokia Belle-uppfærslunni.

Núverandi eigendur af eftirfarandi símum þurfa hinsvegar að uppfæra stýrikerfi í símunum sínum til þess að hægt sé að nýta sér kosti Nokia Belle. Þeir símar sem eru uppfæranlegir eru:

Nokia N8 Nokia C7 Nokia E7 Nokia C6-01
 
Nokia E6 Nokia X7 Nokia 500*  

*Nokia Belle-uppfærslan fyrir Nokia 500 er væntanleg á næstu vikum.

Uppfærslan ber uppfærslunúmerið 111.xxx.xxx þannig að ef þú ert með minni uppfærslu en þessa þá mælum við sterklega með að þú nálgist þessa uppfærslu.

Sem stendur þá er aðeins hægt að uppfæra síma upp í Nokia Belle með því að gera það í gegnum Nokia Suite í PC-tölvu. Útgáfa 3.3 eða hærri dugar af Nokia Suite til þess að geta nálgast Nokia Belle. Ef þú ert með eldri útgáfu en það þá er hægt að hlaða Nokia Suite niður með því að smella hér.

Einnig ef það koma upp einhver vandamál þá er hægt að smella hér og senda tölvupóst á þjónustuver Nokia á Íslandi.

Hér fyrir neðan er síðan myndskeið þar sem er farið ágætlega yfir það helsta sem Nokia Belle hefur upp á að bjóða:

-+-

25. ágúst 2011 - Symbian Anna-uppfærslan er aðgengileg fyrir alla Nokia-notendur.

Komin er ný uppfærsla fyrir Symbian-stýrikerfið sem nefnist Symbian Anna.

-Með þessari uppfærslu er búið að breyta mörgu sem snýr að viðmótinu í Symbian-stýrikerfinu og má þar nefna að t.d. eru komin ný tákn fyrir öll þau forrit sem hægt er að finna inn í valmyndinni. Við það bætist að með Symbian Anna-uppfærslunni þá er komið lyklaborð í 'portrait'-ham eins og það kallast en þá er hægt að nota hefðbundið QWERTY-lyklaborð án þess að  þurfa að snúa  símanum endilega á hlið.

-Einnig er skiptingin á milli biðskjánna orðin mun þýðari þannig að hægt er að renna fingrinum nánast á milli heimaskjánna án þess að mikil breyting sjáist.

-Að auki er núna hægt að nálgast alla íslenska stafi og sérhljóða með því einfaldlega að halda puttanum inni á viðkomandi sérhljóða og þá kemur upp flettilisti yfir þau stafatákn sem eru til fyrir þennan sérhljóða.

-Við þetta má síðan bæta að með Symbian Anna þá er tölvupóstvirknin orðin talsvert betri en þekkst hefur í Symbian-símum fram til þessa og er m.a. búið að laga mörg tæknivandamál sem hafa komið upp vegna Nokia N8 í þessari uppfærslu.

Nú þegar er einn sími kominn í sölu frá Nokia hérlendis, Nokia E6, sem kemur beint upp úr kassanum með Symbian Anna-uppfærslunni og má búast við því að nýrri sendingar af núverandi símum frá Nokia verði með þessari uppfærslu beint upp úr kassanum.

Hinsvegar þarf að uppfæra þá síma sem eru nú þegar í umferð ef notendur vilja fá alla það sem Symbian Anna-uppfærslan hefur upp á að bjóða.

Þessi uppfærsla er aðgengileg fyrir eftirfarandi síma:

Nokia N8 Nokia C7 Nokia E7 Nokia C6-01

Uppfærslan ber númerið 22.014 þannig að ef síminn þinn er með eldri útgáfu en þessi þá mælum við eindregið með því að síminn sé uppfærður.

Til þess að uppfæra símann þá er hægt að nota eftirfarandi leiðir:

1. Nota Nokia Ovi Suite til þess að uppfæra símann. Ef þú ert ekki með Ovi Suite frá Nokia þá er hægt að nálgast það með því að smella hér. Þegar búið er að tengja símann við Ovi Suite þá á að koma upp sjálfvirk athugasemd í forritinu sem bendir þér á að sækja uppfærsluna. Ef ekki, þá á að vera nóg að velja græna ferninginn með grænni ör í miðjunni í forritastikinu í Ovi Suite og þá athuga forritið hvort að það sé aðgengileg uppfærsla.

2. Uppfæra í gegnum símann. Tvær leiðir eru þar í boði, annarsvegar að fara inn í valmynd símans velja Forrit, þar inni er forrit þar sem heitir Hugbúnaðaruppfærslur (oft skammstafað Hugb.uppf.) og ræsa það forrit upp. Hin leiðin er að slá inn öryggisnúmerið *#0000# (eins og verið sé að hringja í símanúmer) og velja þar Valkostir og Leita að uppfærslum.

Hérna er stutt kennslumyndband um hvernig þú getur uppfært stýrikerfið í gegnum símann:

Munurinn á þessum tveimur aðferðum í símanum að með því að nota uppfærsluforritið í símanum sjálfum þá er hægt að handvelja þær uppfærslur sem eru í boði á meðan hin aðferðin tekur allar þær uppfærslur sem eru tiltækar og setur upp á símanum.

Ef uppfæra á í gegnum símann þá mælum við með að þú sért inn á þráðlausri nettengingu (WiFi) vegna þess að uppfærsluskrárnar eru mjög oft talsvert mörg megabæt.

Þess má geta að þessar aðferðir duga fyrir flestar tegundir af Nokia-símum ef það þarf að uppfæra þá.

Hér fyrir neðan er síðan áhugavert kynningarmyndband um hvað Symbian Anna-uppfærslan hefur upp á að bjóða: