Hústæknisvið Hátækni hefur innan sinna vébanda mörg af helstu og þekktustu vörumerkin innan hita- og loftræstigeirans. Þar má helsta nefna:
Fläktwoods -Loftræstisamstæður af öllum stærðum og gerðum, með eða án stjórnbúnaðar, hitaþolna gangnablásara, þakblásara sem henta einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður, stokkaíhluti, viðurkenndar brunarlokur. Við hvetjum viðskiptavini okkar að kynna sér nánar það gríðarlega mikla vöruúrval sem Fläktwoods hefur upp á að bjóða, hægt er að skoða það betur og niðurhala bókum og bæklingum með því að smella hér.
Honeywell – Leiðandi fyrirtæki í heiminum sem býður stjórntæki og búnað fyrir smærri sem stærri kerfi fyrir heimili, stofnanir, virkjannir og bátaflotann. Bjóðum frá þeim hússtjórnunarkerfi sem nær takmarkalaust er hægt að stýra með. Vatns og gufulokar í öllum stærðum og gerðum, nemar og stjórneiningar. Honeywell búnaður hefur m.a.verið valin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Hellisheiðavirkjun, Kbbanka, Landspítala of fleiri stærri byggingar. Sjá nánar á heimasíðu með að smella hér:
www.centraline.com (stjórnbúnaður)
www.honeywell.com (lokar, stjórnbúnaður, hússtjórnunarkerfi, skynjarar og fleira)
RUCK – Blásarar af öllum tegundum og stærðum í svo sem stokka og á þök. Loftræstisamstæður með eða án stýringa. Sumar tegundirnar eru mjög litlar í ummáli og henta í smærri rými. Bjóðum frá þeim einu vinsælustu og áræðanlegustu þrepahraðabreyta á markaðinum ásamt fjölda fylgihluta í stokkakerfi s.s. síukassa. Voru að leysa af stokkunum nýja línu af þakblásurum sem sérhannaðir eru fyrir eldhúsútsog og gerðir til að vinna í 120°C. Sjá nánar á heimasíðu með að smella hér.
Huba Controls – Þrýstiskynjarar fyrir öll verkefni, þó aðallega í loftstokka og rör. Mjög fjölbreytt úrval af merkjum og efnum í þeim. Vinsælir hjá hitaveitum, sundlaugum og þar sem gerðar eru háar kröfur um áræðanleika og nákvæmni. Sjá nánar með því að smella hér.
Industrie Teknink – Skynjarar, mótorlokar og stjórnbúnaður frá hinum virta Ítalska framleiðanda Industrie Technik. Búnaður frá þeim notaður meðal annars í Háskóla Reykjavíkur og tónleikahöllina Hörpu. Sjá nánar með að smella hér.
Trane – Hátækni er með einkaumboð fyrir allan búnað frá Trane sem býður lausnir frá dreifiboxum til stæstu kælipressa. Nær allur loftræstibúnaður á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli er frá Trane. Sjá nánar með að smella hér.
S+S – Bjóðum frá hinum virta framleiðanda S+S í Þýskalandi allr tegundir af skynjurum fyrir raka, hita,loftgæðanema, þrýsting, birtu hvort heldur sem er þráðlaust eða ekki með eða án skjá. Margar litir í boði á rýmisskynjurum. Sjá nánar með að smella hér.
Strulik – Hátækni er með umboð fyrir þessa vönduðu dreifara sem henta vel við aðstæður þar sem gerðar eru háar kröfur um hljóð, dreifingu lofts og útlits. Príðir t.d. upptökusal Ríkissjónvarðsins. Sjá nánar með að smella hér.
Luvata – Leiðandi fyrirtæki með eirrör, og aðrar vörur í framleiðslu á hiturum, kælum og vökvavarmaendurvinnslu elementum í loftræsikerfi. Einnig er hægt að nálgast geisladisk hjá Hústæknisviði sem hefur allar bækur á og valforrit fyrir allar tegundir kæla, hitara, vökvavarmaendurvinnslu elementa. Sjá nánar með að smella hér.
Invertek – Hátækni er með einkaumboð fyrir þessa frábæru tíðnibreyta. Þeir eru framleiddir í þéttleikaflokkum frá IP20 til IP65 og frá 0,37kW til 160kW. Ýmis samskiptabúnaður er í boði með þeim sem og aukabúnaður sem skoða má betur með því að smella hér.
Devatek –Er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á gufurakatækjum og öðrum búnaði tengdum rakakerfum. tækin er hægt að tengja við loftræstikerfi til rakagjafar, eða setja upp ein og sér til rakagjafar í viðkomandi rými. Hægt að fá þau með samskiptabúnaði.Fjöldi rakatækja frá Devatek eru notkun hér á landi s.s. í ölgerðinni, Akurskóla og Hellisheiðavirkju og sinna þau rakagjöf fyrir fjólbreyttar aðstæður. Hægt er að skoða það betur með því að smella hér.
Coiltech – Hitablásar fyrir lóðréttan eða láréttan blástur. Margar stærðir í boði. Getum boðið frá þeim blásara með riðfríum hiturum. Bjóðum heildarlausnir í hita og hraðastjórnun á þeim. Sjá nánar með að smella hér.
Fläktwoods - Loftræstisamstæður af öllum stærðum og gerðum, með eða án stjórnbúnaðar, hitaþolna gangnablásara, þakblásara sem henta einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður, stokkaíhluti, viðurkenndar brunarlokur, við hvetjum viðskiptavini okkar að kynna sér nánar það gríðarlega mikla vöruúrval sem Fläktwoods hefur upp á að bjóða, hægt er að skoða það betur með því að smella hér.
