Hátækni í 25 ár
Heildsala
Þjónusta Hústækni Heilbrigðissvið Verslun
 

Nokia

Án efa er Nokia þekktasta vörumerki sem Hátækni hefur umsýslu með. Nokia er stærsti farsímaframleiðandi heims og sömuleiðís stærsta fyrirtæki innan Evrópu en Nokia er með aðalstöðvar sínar í Finnlandi þar sem það var stofnað árið 1865. Upphaflega var starfssemi Nokia í pappírs- og gúmmíiðnaðinum en árið 1912 bættist Finnish Cable Works við starfssemi Nokia. Fyrirtækið hóf þá framleiðslu á rafmagnsvírum og var það fyrsti vísirinn að framleiðslu á raftækjum og upphafið af framleiðslu á farsímum. Árið 1979 stofnuðu Nokia og Salora með sér fyrirtækið Mobira Oy og fyrsti farrsíminn leit dagsins ljós árið 1981. Nokia keypti síðan Salora útúr farsímarekstrinum árið 1984 þegar Mobira Talkman fór í sölu.

Árið 1985 gerðist Hátækni umboðsaðili Mobira á Íslandi og árið 1991 fór fyrsta GSM-kerfið í loftið. Sama ár var nafni Mobira breytt í Nokia og fyrsti GSM-síminn kom á markað. Upp frá því hefur Nokia verið leiðandi á farsímamarkaðnum og verið með hátt undir 40% heimsmarkaðshlutdeild á þeim markaði.

Hátækni er elsti starfandi samstarfs- og dreifingaraðili Nokia í heiminum sem má rekja aftur til ársins 1985 þegar Hátækni hóf sölu á Mobira-farsímum hérlendis. Í seinni tíð hefur Nokia sömuleiðis verið leiðandi afl á snjallsímamarkaðnum þar sem framleiddir eru snjallsímar sem eru í raun litlar margmiðlunartölvur sem geta farið á Netið, tekið myndir og myndskeið í háskerpu og eru um leið GPS-staðsetningartæki sem hægt er að nýta sem leiðsögutæki.


Imation (TDK)

Imation var stofnað formlega árið 1996 þegar það klauf sig útúr 3M og keypti Memorex en það fyrirtæki hafði um árabil framleitt m.a. rafhlöður, skrifanlega geisladiska og aðrar afritunarlausnir. Árið 1997 keypti Imation geymslumiðlaframleiðsluna af TDK en það fornfræga fyrirtæki var stofnað árið 1935.

Í dag er Imation eitt stærsta fyrirtæki heims á afritunarlausnum og samanstendur vörulína Imation m.a. af skrifanlegum DVD, CD og Blu-Ray diskum ásamt utanáliggjandi hörðum diskum, USB-minnislyklum og framleiðsla á rafhlöðum fyrir raftæki.


LG

Eitt af öflugustu fyrirtækjum Suður-Kóreu er LG en fyrirtækið var stofnað árið 1958. Á sjöunda áratug liðinnar aldar framleiddi LG fyrstu ísskápana, útvarps- og sjónvarpstækin og þvottavélarnar í Kóreu. Segja má að allt frá þeim tíma hafi LG verið leiðandi afl í raftækjaframleiðslu í Asíu.

Á seinni árum hefur LG náð góðri fótfestu í Evrópu og er t.a.m. LG annað stærsta sjónvarpsmerkið á Norðurlöndunum. Að auki hefur LG haslað sér völl í hljóðgeiranum og eru heimabíóstæður frá LG með þeim flottustu á markaðnum í dag. Á undanförnum árum hefur LG einnig komið með glæsilega Blu-Ray-spilara sem eru hægt og bítandi að taka við af DVD-spilurum sem sá miðill sem flestir kjósa til þess að horfa á kvikmyndir í háskerpu-upplausn.


Palladine

Árið 2002 hóf Palladine framleiðslu á LCD-sjónvarpstækjum og ári síðar leit einnig fyrsta plasma-tækið í ljós frá þeim. Palladine hefur síðan þá vaxið jafnt og þétt og er núna með vinsælli sjónvarpframleiðendum í Asíu. Palladine er með höfuðstöðvar og framleiðslu í Singapore og hefur m.a. tekið þátt í því með Hátækni hérlendis að þýða valmyndakerfi þeirra sjónvarpa sem eru seld hér á íslensku.

Hátækni hefur verið umboðsaðili Palladine á Íslandi frá árinu 2005 og hefur samstarf fyrirtækjanna verið farsælt.


Motorola 

Talstöðvar og Tetra-stöðvar frá Motorola hafa fyrir löngu sannað gildi sitt hér á landi. Motorola er eitt fremsta fyrirtæki heims í samskiptum fyrir viðbragðsaðila. Motorola var stofnað 1928 og hefur gengið í gegnum mörg ævintýri og tekið að sér framleiðslu og dreifingu á m.a. útvarpstækjum, sjónvörpum, gervihnattasímum og mörgu fleiru.

Motorola í dag er hinsvegar best þekkt sem framleiðandi á farsímum og talstöðvum. Hátækni hefur flutt inn og dreift Motorola-talstöðvum til fjölda ára og hefur að sama skapi þjónustað þessar vörur í gegnum þjónustumiðstöð fyrirækisins.


Yamaha

Árið 1887 hóf Yamaha starfssemi sína og voru fyrstu vörur fyrirtækisins orgel smíðuð úr holvið. Yamaha er núna orðið eitt af stærstu fyrirtækjum Japans og eru 44 dótturfyrirtæki undir hatti Yamaha. Án efa þekkja flestir Íslendingar Yamaha-hljómflutningstæki sem hafa verið hluti af tónlistarmenningu þessarar þjóðar frá því um miðbik 20. aldarinnar.

Auk þess sem að Yamaha framleiðir hágæða magnara og hátalara, þá hefur Yamaha einnig framleitt á undanförnum árum myndvarpa og aðrar myndlausnir sem hentar jafnt einstaklingum sem fyrirtækjum.


Belkin

Fyrirtækið var stofnað árið 1983 og hefur tvisvar sinnum náð inn á lista tímaritsins Inc. yfir 500 vaxtarmestu fyrirtæki Bandaríkjanna. Belkin sérhæfir sig í framleiðslu á netbeinum (routers), fartölvuaukahlutum, hlífum og töskum fyrir fartölvur og er Belkin einnig inn fremsti framleiðandi heims á aukahlutum fyrir iPod og iPhone frá Apple.


Salora

Í yfir 80 ár hefur Salora framleitt fyrsta flokks raftæki fyrir neytendamarkað og er fyrirtækið í dag hvað þekktast fyrir sjónvörp með innbyggðum myndspilurum, hefðbundna myndspilara sem og ferðaspilara, útvarspvekjaraklukkur og önnur tæk fyrir heimili.

Salora er upprunalega frá Finnlandi og árið 1989 seldi Nokia framleiðslulínu sína á sjónvörpum til Salora. Hérlendis hafa sjónvarpstæki frá Salora reynst vel fyrir ferðafólk sem er með húsbíla eða fellihýsi þar sem tækin styðja 12 volta straum.