Hjá Heilbrigðissviði Hátækni er hægt að finna hágæða tæki og búnað sem henta fyrir flestar heilbrigðisstéttir sem og aðra aðila sem tengjast heilbrigðisrekstri. Má þar nefna t.d. súrefnismettunar- og púlsmæla, vogir, mjaltavélar og hitakassa svo fátt eitt sé nefnt.
Hanskar
Við bjóðum gæða skoðunarhanska úr nitrile.
- Mjög sterkir og teygjanlegir, leggjast vel að höndunum
- Latexfríir hanskar,sem hafa reynst frábærlega þeim sem eru með ofnæmi og viðkvæmar hendur
- Hanskarnir eru þrisvar sinnum sterkari en náttúrulegt latex og vinyl
Nýburavörur
Erum með ýmsar vörur fyrir mæður og ungabörn frá ARDO, sem er 25 ára gamalt svissneskt fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í vönduðum vörum ARDO framleiðir m.a.brjóstadælur , hitakassa og hitateppi fyrir nýbura og ýmsar vörur fyrir mæður með börn á brjósti.

Súrefnismettunar, hemaglobin- og púlsmælar
Masimo framleiðir hágæða mæla sem athuga súrefnismettun, púls eða hemaglobin í líkamanum. Mælarnir frá Masimo eru stafrænir með skýrum og góðum skjá, þannig að hægt er að lesa niðurstöður á skýran hátt.

Fæðingar- og æðadopplerar
Ultrasound Technologies hefur framleitt til fjölda ára fæðingar- og æðadopplera og m.a. fengið viðurkenningu sem útflytjandi ársins árið 2003 í Wales þar sem höfuðstöðvar Ultrasound eru.

Skurðverkfæri
Mikið úrval af fjölnota skurðverkfærum fyrir spítala, tannlækna og dýralækna. Verkfærin eru frá virtum þýskum framleiðanda Nopa Instruments
Lyfjakælar
Kirsch hefur framleitt hágæða lyfjakæla sem henta bæði stórum sem smáum heilbrigðisstofnunum.

Í boði er sogpokar, sogílát og sogdælur frá Ardo og Serres.

Brjóstholssog
Búnaður til brjóstholssog er í boði frá Atrium auk búnaðar þá getum við boðið alla aukahluti fyrir brjóstholssoginn. Atrium framleiðir einnig ýmsar vörur á sviði hjarta og æðaskurðlækninga.
Ýmsar plastvörur fyrir spítala
Erum með nýrnabakka, nálabox og þvag og saursýnaglös frá Aptaca og Uson Plast

Hjálpartæki og böð
Vörur frá þýska fyrirtækinu GK-Medizinmechanik sem framleiðir gæða hjúkrúnarböð og lyftur.

Aðgerðarpakkar
Í boði eru aðgerðapakkar fyrir flestar tegundir aðgerða. Hægt er að kaupa tilbuin sett með öllu sem þarf í viðkomandi aðgerð og er með þessu hægt að spara mikinn tíma og kostnað við undirbúning aðgerða. Frekari upplýsingar um þessa pakka má sjá hjá Rocialle Inhealth.
Ómskoðunar-gel og vaxstangir
Danska fyrirtækið Rohde býður upp á fyrsta flokks vörur, sem reynst hafa mjög vel hér á landi undanfarin ár. Vörur á borð við gel sem notað er við ómskoðun, og 1kg vaxstangir til notkunar í vaxpotta.
Vogir
Heilbrigðissvið Hátækni flytur inn vogir frá fyrirtækinu ADE í Þýskalandi. ADE hefur sérhæft sig í framleiðslu á nákvæmum mælitækjum sem henta bæði fyrir sjúkrahús sem og rannsóknarstofur.












