Eins og við sögðum ykkur frá um helgina þá stefndi allt í að Samsung myndi kynna uppfærslur á Galaxy-græjunum sínum, þ.e. flaggskipinu sínu í snjallsímum og nýja spjaldtölvu. Hvort tveggja reyndist rétt og svo bættist ýmislegt annað við.
Samsung kynnti uppfærslu á Samsung Galaxy S-símanum sínum sem nefnist einfaldlega Samsung Galaxy S II. Skjárinn er tæpar 4,3 tommur og keyrir þessi sími á tvíkjarna örgjörva frá Samsung, myndavélin er 8 megapixlar og hann keyrir á Android 2.3 (Gingerbread) með TouchWiz-viðmótinu frá Samsung. Síminn er aðeins 8,49mm á þykkt og ætti því að vekja talsverða athygli þegar hann kemur í sölu núna á næstu vikum.
Einnig var kynnt 10,1 tommu spjaldtölva sem nefnist einfaldlega Samsung Galaxy Tab II. Hún á þó lítið sameiginlegt með 7 tommu litla bróður sínum sem kom í sölu síðasta haust enda keyrir þessi tölva á Android 3.0 og er hægt að fá hana með 16 eða 32GB minni. Hún keyrir á tvíkjarna örgjörva frá NVIDIA sem nefnist Tegra2 og skilar því um 1,2 GHz hraða. Hún er aðeins léttari en Motorola Xoom og Apple iPad sem ætti eflaust að gleðja marga.
Samsung var líka með 5 tommu spjaldtölvur á básnum hjá sér sem eru bara með WLAN-tengingu og því er Samsung að staðsetja sig sem leiðandi afl á spjaldtölvumarkaðnum með því að bjóða upp á mismunandi stærðir af tölvum, allt eftir því hvað fólk vill og hvað hentar hverju sinni.