Tćknibloggiđ
Til baka
Magnús Viđar Skúlason
Nýtt heimsmet í farsímakasti hefur veriđ stađfest
26. ágú 2012 | 08:25 | Flokkur: Símar, Fréttatilkynning, Nokia,

Nýlega fór fram heimsmeistaramótið í farsímakasti í Finnlandi og var þar m.a. slegið nýtt heimsmet.

Ekki er við öðru að búast en keppt sé í farsímakasti í Finnlandi enda hefur Finnland lengi verið þekkt sem Nokia-land og að hvergi í heiminum sé farsímaeign og notkun eins mikil og þar í landi.

Heimsmeistaramótið í þessari göfugu íþrótt fór fram þar í landi fyrir ekki svo löngu síðan og var þar m.a. sett nýtt heimsmet þegar finnski táningurinn Ere Karjalaeinen náði að fleygja Nokia-síma hvorki meira né minna en 101,46 metra.

Til samanburðar þá er þetta um 17 metrum lengra en gullverðalaunahafinn Keshorn Walcott frá Trindiad og Tobago kastaði á Ólympíuleikunum 2012 en hann kastaði spjóti sínu 84,58m. Það sem kemur kannski ekki á óvart er að í þriðja sæti á Ólympíuleikunum var einmitt Finninn Antti Russkanen sem kastaði 84,12m þannig að Finnar hafa greinilega mjög öfluga kastvöða.

Þegar Ere Karjalaeinen var spurður að því hvernig hann undirbjó sig fyrir keppnina þá svaraði hann því einfaldlega að hann hafi einungis æft sig einu sinni og það hjálpaði að drekka mikið áfengi.

Um 50 keppendur víða um heim tóku þátt í keppninni og voru keppendur alla leið frá Indlandi mættir til þess að etja kappi við hvorn annan. Ekki fylgir fréttinni hvernig sími var notaður í keppninni.

Fara aftur í blogg

Leita í bloggfćrslum