Tæknibloggið
Til baka
Magnús Viðar Skúlason
Kaup Google á Motorola samþykkt
15. feb 2012 | 08:25 | Flokkur: Símar, Tölvur, Fréttatilkynning, Android,

Evrópusambandið og dómsmálaráðuneytið í Bandaríkjunum hafa samþykkt kaup Google á Motorola og heimilað samruna þessara fyrirtækja.

Án efa er þessi niðurstaða mikill léttir fyrir bæði fyrirtækin en fyrirfram var löngu búið að ganga frá öllum innanbúðarmálum sem snúa að þessum kaupum og stjórnir fyrirtækjanna búnar að taka ákvörðunina fyrir og samþykkja hana.

Er þetta því þvert á óskir Consumer Watchdog sem hafði varað við þessum samruna og þeim áhrifum sem það gæti haft á neytendur.

Evrópusambandið og dómsmálaráðuneytið í Bandaríkjunum (DOJ) höfðu unnið náið að rannsókn málsins og gáfu því út tilkynningu þess efnis að ekkert stæði í vegi fyrir þessum samruna.

Google gerði tilboð í Motorola í ágúst á síðasta ári og er því málið búið að vera í vinnslu hjá opinberum aðilum í talsvert langan tíma. Vildu sumir jafnvel meina að Google hefði greitt yfirverð fyrir Motorola en það mun vera vegna þess að þáverandi forstjóri Motorola, Sanjay Jha, náði að 'plata' Google-menn með þeim hætti að hann lét sem að aðrir aðilar hefðu áhuga á að kaupa fyrirtækið.

Eflaust þýðir þetta að nú mun Google fara á fullt við að hanna og þróa tæki sem hugsanlega Motorola mun framleiða en fregnir af slíkum búnaði eru nú þegar farnar að leka út.

Svo er spurning hvenær næsta Google-flaggskipið í Android-símum kemur en það er næsta víst öruggt að Motorola muni framvegis sjá um framleiðslu á slíkum tækjum. Fram að þessu hafa HTC og Samsung framleitt sitthvorn Google-símann.

Fara aftur í blogg

Leita í bloggfærslum