Tćknibloggiđ
Til baka
Magnús Viđar Skúlason
The Amazing Everyday - Steve Ballmer-útgáfan
22. feb 2012 | 20:54 | Flokkur: Símar, Nokia, Windows Phone, Microsoft,

Nokia setti af stað auglýsingarherferð í kringum Lumia-línuna frá sér sem ber yfirskriftina The Amazing Everyday. Nú er búið að taka eina athyglisverðustu auglýsinguna úr þessari herferð og staðfæra hana aðeins til með skemmtilegum myndbrotum frá Microsoft.

Maður að nafni Richard Lai tók Nokia-auglýsinguna og setti inn á hana nokkur skemmtileg myndskeið þar sem Steve Ballmer, forstjóri Microsoft, er í essinu sínu ásamt brotum úr eldgömlum auglýsingum þar sem Bill Gates og Ballmer reyna sitt besta til þess að vera pínu hipp og smá kúl.

Eins og venjulega þá er sjón sögu ríkari og hægt er að sjá myndskeiðið hérna fyrir neðan:

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Microsoft međ nýja tónlistarveitu á leiđinni - mögulega nýjan tónlistarsíma í samvinnu viđ Nokia?
21. feb 2012 | 15:33 | Flokkur: Símar, Tölvur, Nýjungar, Orđrómur, Nokia, Windows Phone, Microsoft,

Microsoft er mögulega að íhuga uppstokkun á tónlistarveitunni sinni og líkur eru á að Nokia komi að einhverju leyti inn í þá pælingu.

Microsoft hefur fram til þessa boðið upp á Zune-tónlistarpassa sem veitir ótakmarkaðan aðgang að tónlistarstreymi t.d. í gegnum Xbox á 9,99 dollara á mánuði. Nú er farinn af stað nokkuð áreiðanlegur orðrómur þess efnis að Microsoft hafi verið í viðræðum við tónlistarrétthafa og aðra dreifingaraðila í Bandaríkjunum að undanförnu.

Mögulega er Microsoft að skoða þann möguleika að vera með einskonar tónlistarveitu líkt og iTunes-lausnin frá Apple en í gegnum lausnina hjá Microsoft muni hugsanlega vera fleiri möguleikar í niðurhali, eins og t.d. að eiga tónlistina á drifinu hjá sér eða í símanum eða einfaldlega streyma hana niður hverju sinni.

Inn í þessa umræðu fléttast möguleiki á því að einhverskonar tónlistarsími sem keyrir á Windows Phone-stýrikerfinu verði kynntur í tengslum við þessa tónlistaruppstokkun og hefur Nokia verið nefnt þar sem mögulegur framleiðandi á slíkum síma. Hvort að frumkvæðið að Nokia-tónlistarsíma sem keyrir á Windows Phone sé komið frá Microsoft eða Nokia fylgir ekki fréttinni.

Talið er að tónlistarveitan yrði gerð aðgengileg um svipað leyti og Windows 8 fer í almenna sölu núna í haust þannig að Microsoft er greinilega að tjalda öllu til þegar það kemur að nýjasta útspili fyrirtækisins á stýrikerfismarkaðnum.

Frægt er þegar Microsoft ákvað að slaufa algjörlega Zune-tónlistarspilaranum sínum undir lok síðasta árs en þessi spilari hafði vakið takmarkaða athygli vestanhafs og náði aldrei því flugi sem honum var ætlað. Hinsvegar er Microsoft að binda miklar vonir við að nýta sér Windows Phone-stýrikerfið sem hið miðlæga forrit til þess að miðla tónlist yfir í símtæki enda eru fleiri og fleiri notendur farnir að nota símtækin sem sinn helsta tónlistarspilara.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
LG Optimus Vu formlega kynnt
21. feb 2012 | 13:24 | Flokkur: Símar, Tölvur, Nýjungar, Fréttatilkynning, LG, Android,

LG hefur formlega kynnt 5 tommu spjaldtölvu/snjallsíma sem er með hálfgert nostalgíu-kast þegar það kemur að skjáhlutföllunum.

Svo virðist sem að það sé vaxandi markaður fyrir snjallsíma/spjaldtölvur sem eru í kringum 5 tommur að stærð en þótt ótrúlegt megi virðast þá hefur Samsung Galaxy Note, sem er fyrsta almennilega 5 tommu græjan á markaðnum, vakið talsverða athygli og spurning hvort það sé að myndast einhver markaður fyrir þessa draugaskjástærð?

Lengi vel var talið að snjallsímar væru orðnir of stórir ef þeir voru með 5 tommu skjá og að spjaldtölvur væru of litlar ef þær væru með 5 tommu skjá. Hafa því sumir farið að kalla þessar græjur phablets, sem er samblanda af orðinu phone og tablet sem væri þá hægt að útleggja á íslensku sem snjalltölvu ef við sameinum orðin snjallsími og spjaldtölva.

LG hefur hinsvegar formlega kynnt sitt fyrsta útspil á þennan markað í græju sem nefnist LG Optimus Vu. Um er að ræða 5 tommu snjalltölvu sem er í skjáhlutföllunum 4:3 sem er sama skjáhlutfall og var á flestum sjónvarpstækjum á 20. öldinni.

LG Optimus Vu er með 1,5 GHz örgjörva ásamt 1GB vinnsluminni, er aðeins 8,5mm á þykkt (þynnri en Samsung Galaxy Note) og keyrir á Android 2.3 með loforði um að hægt verði að uppfæra græjuna upp í Android 4.0 innan þriggja mánaða.

Við þetta má bæta að LG Optimus Vu er einnig með innbyggt 32GB geymsluminni, LTE-stuðning og HDMI-út tengi. Búast má við því að þessi græja fari í almenna sölu víða um heim núna í mars.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Microsoft kynnir SkyDrive-app fyrir Windows 8
21. feb 2012 | 11:14 | Flokkur: Tölvur, Nýjungar, Fréttatilkynning, Microsoft,

Microsoft hefur svipt hulunni af SkyDrive-smáforriti sem verður aðgengilegt í Windows 8.

Um er að ræða einskonar viðmót sem tengist við SkyDrive-geymslulausnina sem Microsoft býður upp á en með SkyDrive er hægt að geyma flest öll gögnin sín á drifi sem er aðgengilegt í gegnum Netið, líkt og Dropbox.

Smáforritið fylgir með prufuútgáfunni af Windows 8 sem verður gerð aðgengileg í næstu viku og ættu notendur því að geta hlaðið niður Windows 8 og fengið að prófa snertivirknina og annað slíkt í þessari nýjustu útgáfu af Windows-stýrikerfinu.

Lokaútgáfan af Windows 8 verður síðan fáanleg næsta haust að öllu óbreyttu.

Það sem Microsoft hafði í huga með SkyDrive-smáforritinu var að gera það notendavænt og þægilegt fyrir snertivirkni þannig að skrárnar sem maður geymir þar séu mjög myndrænar og snertivænar og einnig að koma Metro-viðmótsvirknina í gang þar þannig að hvaða tæki sem er sem er með Metro-viðmótið, hvort sem það er í Windows 8 eða Windows Phone getur þá komist inn á SkyDrive-drifið með einföldum og þægilegum hætti.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Panasonic kynnir formlega Panasonic Eluga-snjallsímann
21. feb 2012 | 08:38 | Flokkur: Símar, Nýjungar, Fréttatilkynning, Android,

Panasonic hefur formlega kynnt fyrsta símtækið í endurkomu sinni á snjallsímarkaðinn.

Snjallsíminn sem um ræðir nefnist Panasonic Eluga og er þetta 4,3 tommu-snjallsími sem er ryk- og vatnsvarinn ásamt því að vera með NFC-stuðning, 8 megapixla myndavél, 8GB geymsluminni og er aðeins 7,8mm á þykkt og vegur einungis 103 gr.

Panasonic Eluga mun keyra á Android 2.3 en uppfærsla upp í Android 4.0 er væntanleg núna í sumar. Símtækið mun fara formlega í sölu núna í mars í Evrópu.

Þessar upplýsingar koma heim og saman við það sem áður er komið fram um þennan síma og nú er bara spurning hvernig Panasonic ætlar að fylgja þessu símtæki eftir í nánustu framtíð.

Magnús Viđar Skúlason
Microsoft kynnir nýtt vörumerki fyrir Windows 8
20. feb 2012 | 15:33 | Flokkur: Tölvur, Nýjungar, Fréttatilkynning, Nokia, Windows Phone, Microsoft,

Microsoft hefur formlega kynnt nýtt lógó fyrir Windows 8-stýrikerfið sem á að fara í almenna dreifingu með haustinu.

Nýja merkið tekur mið af þeim breytingum sem eru að eiga sér stað með Windows-stýrikerfið og vísar nýja Windows-lógóið í Metro-viðmótið sem er orðið víðfrægt í Windows Phone-stýrikerfinu.

Reyndar benti einhver á að nýja Windows-merkið væri skuggalega sterk tilvísun í finnska fánann samanber samstarf Nokia og Microsoft með Windows-stýrikerfið.

Windows 8-stýrikerfið hefur vakið talsverða athygli og mun þetta verða fyrsta stýrikerfið frá Microsoft sem tekur sérstaklega mið af spjaldtölvum.

Eins og sést á myndinni hér fyrir neðan hefur lógóið- sem Microsoft hefur notað fyrir Windows-stýrikerfið tekið talsverðum breytingum í áranna rás og endurspeglar merkið hverju sinni þær áherslur sem stýrikerfið er að bjóða upp á og þann hönnunarstíl sem er mest áberandi og einkennandi fyrir stýrikerfið.

http://www.doublejdesign.co.uk/wp-content/uploads//win_logos.jpg

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Verđur Nokia 808 PureView međ tvíkjarna örgjörva?
20. feb 2012 | 13:32 | Flokkur: Símar, Nýjungar, Orđrómur, Nokia,

Sterkar líkur eru á því að Nokia muni kynna fyrsta símann sinn með tvíkjarna örgjörvann á MWC 2012.

Talið er að Nokia muni kynna einn nýjan Symbian-síma á MWC 2012 og segir sagan að það sé sími sem heitir Nokia 808 PureView. Mun þetta vera myndavélaarftaki Nokia N8 en líkur eru á að t.d. mun megapixla-fjöldinn í þessum síma vera eitthvað sem ekki hefur sést áður í síma.

Talið er einnig líklegt að til þess að síminn ráði við að taka upp myndskeið í FullHD (1080p) þá þurfi að vera til staðar tvíkjarna-örgjörvi og eru taldar því sterkar líkur á að svo muni vera.

Það vekur því spurningar um hvort að Nokia muni því um leið kynna til sögunnar Nokia Carla-útgáfuna af Symbian-stýrikerfinu en ekki hefur verið staðfest hvort Nokia Belle sé með stuðning við tvíkjarna örgjörva.

Hvort að þessar upplýsingar standist mun þó koma í ljós í næstu viku þegar MWC 2012 fer af stað í Barcelona og Tæknibloggið mun verða á staðnum til þess að flytja fregnir af því sem þar fer fram.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Ný útgáfa af Angry Birds á leiđinni - Angry Birds Space
20. feb 2012 | 11:07 | Flokkur: Símar, Tölvur, Nýjungar, Fréttatilkynning, Forrit,

Rovio Mobile, sem stendur á bakvið hinn óviðjafnanlega Angry Birds-leik, er með ný útgáfu af þessum vinsæla leik í deiglunni.

Útgáfan nefnist einfaldlega Angry Birds Space og er leikurinn unninn í samstarfi við NASA og National Geographic. Lítið er vitað nákvæmlega hvernig þessi útgáfa kemur til með að líta út eða virka en talið er að leikurinn muni snúast um áframhaldandi fuglabardaga við aðstæður sem hafa ekki þekkst áður í Angry Birds eins og t.d. í þyngdarleysi og öðru slíku. Einnig mun verða hægt að beita einhverskonar 'ljóshraðaeyðileggingu' að einhverjum hluta í leiknum.

Ekki er vitað hver aðkoma NASA og National Geographic er að málinu en það er spurning hvort það sé einhver fræðsluvinkill sem verður hluti af leiknum sem þessar tvær stofnanir koma að.

Ekki hefur verið staðfest hvaða stýrikerfi muni bjóða upp á þessa nýju útgáfu en Rovio gaf það í skyn að frekari upplýsingar myndu koma upp á yfirborðið í aðdraganda formlegrar kynningar á leiknum sem verður í upphafi mars. Búast má við því að leikurinn verði gerður aðgengilegur til niðurhals 22. mars ef marka má stikluna sem búið er að gera fyrir þennan leik:

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Fyrstu myndirnar af iPad 3 leka út
20. feb 2012 | 08:45 | Flokkur: Tölvur, Nýjungar, Orđrómur, iOS,

Svo virðist sem að fyrstu myndirnar af hinni væntanlegu iPad 3-spjaldtölvu hafi lekið út á Netið.

Myndirnar sem eiga að vera af iPad 3, sem á að verða formlega kynnt í byrjun mars, staðfestir fyrri fregnir um að nýjasta spjaldtölvuútspilið frá Apple muni líta nánast eins út og fyrri spjaldtölvur frá fyrirtækinu.

Þó má búast við að skjárinn sé svokallaður Retina-skjár eins og verið hefur í iPhone 4 og 4S, mun betri rafhlöðuending auk þess að myndavélin verður 8 megapixlar og stuðningur verður við LTE-kerfið í Bandaríkjunum.

Það styttist þó í að þessi spjaldtölva verði formlega kynnt og má því búast við að á næstu dögum muni rigna yfir netheima fregnum af hinum og þessum pælingum og lekum sem snúa að iPad 3.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Ritstjóri Tćknibloggsins í viđtali á Bylgjunni
19. feb 2012 | 08:34 | Flokkur: Símar, Nokia, HTC,

Reykjavík síðdegis tók stutt viðtal við undirritaðan sl. fimmtudag þar sem rætt var um rafhlöðuendingu í farsímum.

Mikil umræða hefur verið á undanförnum árum um rafhlöðunotkun í símum og virðist sem að margir séu enn fastir í gamla hugsunarhættinum þegar það kemur að hleðslu á rafhlöðum.

Áður fyrr voru rafhlöður framleiddar úr efnum eins og nikkeli sem er sérlega viðkvæmt fyrir því að fá inn á sig hleðslu ef það er ennþá straumur á rafhlöðunni. Við það getur myndast svokallaðar botn þannig að rafhlaðan nær ekki að fullhlaða sig lengur. Eina leiðin til þess að laga þetta var að treysta á að hægt væri að hleypa meiri straum inn á rafhlöðuna og ná þannig að hreinsa botninn en þá þurfti að leita með rafhlöðuna á rafmagnsverkstæði og var ekki sjálfgefið að það myndi takast að laga rafhlöðuna.

Hinsvegar fóru fyrstu símarnir með svonefndum lithium-rafhlöðum að líta dagsins ljós um aldamótin og þá sérstaklega rafhlöður sem nefnast lithium-polymer. Slíkar rafhlöður má hlaða hvenær sem er, óháð því hvort það sé eitthvað inn á þeim eða ekki.

Lithium-rafhlöður eru reyndar þannig að þær þola einungis ákveðið margar hleðslur og að þeim loknum eru rafhlöðurnar í raun ónýtar, þ.e. þær halda mjög lítilli hleðslu inni. Endingartími lithium-rafhlaðna er í kringum 18-24 mánuðir en það ræðst fyrst og fremst af því hversu oft síminn er hlaðinn hvað þetta endist lengi. Venjuleg rafhlaða getur þolað á bilinu 400 til 700 hleðslur. Þess má geta að þó að rafhlaðan sé hálf tóm og stungið í hleðslu að þá telst það ekki sem heil hleðsla heldur bara sem hálf.

Lithium rafhlöður eru ólíkt nikkel-rafhlöðunum mun viðkvæmari fyrir hitabreytingum og geta notendur því lent í vandræðum ef það er kalt út. Hleðslan getur þá dottið hratt niður en þá er oft nóg að stinga símanum inn á sig og halda honum heitum í 10-15 mínútur og ætti þá að koma aftur upp hleðsla á símann.

Hægt er að lesa útdrátt úr viðtalinu á þessum hlekk hér og sömuleiðis hlusta á viðtalið í heild sinni.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Yfirtaka Sony á Sony Ericsson formlega lokiđ
18. feb 2012 | 08:15 | Flokkur: Símar, Nýjungar, Fréttatilkynning, Android,

Sony hefur formlega lokið yfirtöku sinni á Sony Ericsson og er því komið formlega aftur inn af fullum krafti í farsímaframleiðslu.

Þar með er nokkra mánaða ferli Sony lokið en fyrirtækið gerði yfirtökutilboð í hlut Ericsson í Sony Ericsson í október á síðasta ári.

Frá með deginum í dag mun þessi framleiðsla nefnast Sony Mobile Communications. Sony þurfti að greiða Ericsson 1,05 milljarð evra fyrir hlutinn. Sony hefur ekki gefið út formlega hvað sé í vændum hjá Sony í þessari framleiðslu en miðað við hvað var í boði frá fyrirtækinu á CES 2012 þá má búast við miklu frá Sony á næstunni.

Magnús Viđar Skúlason
Er ţetta Nokia Lumia 610?
17. feb 2012 | 15:34 | Flokkur: Símar, Orđrómur, Nokia, Windows Phone,

Mögulega hafa lekið út á Netið myndir af væntanlegum Windows Phone-síma frá Nokia sem mun verða í ódýrari kantinum.

Sagan segir að hér sé á ferðinni Nokia Lumia 610 en nokkuð sterkur orðrómur er á kreiki um að hann verði kynntur formlega á MWC 2012 í lok mánaðarins.

Um væri þá að ræða ódýran Windows Phone-síma frá Nokia sem myndi þá væntanlega keyra á Tango-uppfærslunni á Windows Phone-stýrikerfinu. Tango-uppfærslan mun m.a. gera framleiðendum kleyft að framleiða ódýrari síma þar sem búið er að slaka aðeins á vélbúnaðarkröfunum með þessari uppfærslu.

Eins og sést þá svipar þessi sími mjög til þess sem að Nokia C7 og 701-símarnir líta út en það vekur líka spurningar um hvort að þetta sé einfaldlega einhver Photoshop-draumur hjá dyggum aðdáenda.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
BMW-app fyrir iPhone; samt ekki eins og James Bond
17. feb 2012 | 13:34 | Flokkur: Símar, Nýjungar, iOS,

BMW hefur sent frá sér smáforrit fyrir iPhone sem þó er ekki eins og það sem James Bond hefur haft aðgang að í gegnum tíðina.

Smáforritið gerir eigendum BMW 3-bíla kleyft að aflæsa bílnum, kveikja á framljósunum, virkja flautina og finna hvar bílnum var lagt ef búið er að týna bílnum á bílastæði.

Þetta er þó ekkert í líkingu við það sem James Bond hafði aðgang að fyrir BMW-inn sem hann keyrði á í Tomorrow Never Dies:

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Apple sendir frá OS X 10.8 Mountain Lion - nýjustu útgáfuna af Mac OS-stýrikerfinu
17. feb 2012 | 11:06 | Flokkur: Tölvur, Nýjungar, Fréttatilkynning, iOS,

Apple kynnti nýjustu útgáfuna af Mac OS-stýrikerfinu sínu í vikunni og segja má að þróunin á stýrikerfum fyrir borð- og fartölvur sé að þróast mikið í sömu áttina.

Öllum að óvörum svipti Apple hulunni af nýjustu OS-útgáfunni hjá sér en þetta mun vera útgáfa 10.8 og ber heitið Mountain Lion. Að sögn kunnugra þá er þessi útgáfa að fara langt með að sameina það helsta sem hægt er að finna í iOS-stýrikerfinu við Mac OS-stýrikerfið og er virkni á borð bið iMessage, Game Center og iCloud komin inn.

Útgáfan sem er komin núna er aðeins beta-útgáfa en lokaútgáfan mun fara í almenna dreifingu í sumar.

Apple virðist því stefna í sömu átt og Microsoft með Windows-stýrikerfið en Windows 8 mun verða fyrsta stýrikerfið frá Microsoft sem er hannað sérstaklega fyrir spjaldtölvur. Windows 8 kemur út í haust og ljóst að þessir hugbúnaðarrisar munu kljást áfram á stýrikerfismarkaðnum af fullri hörku.

Hægt er að kynna sér betur hvað Mac OS X 10.8 býður upp á með því að smella hér.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Dagar Android í núverandi mynd senn taldir?
17. feb 2012 | 08:44 | Flokkur: Símar, Tölvur, Android,

Meg Whitman, forstjóri HP, telur að Android í þeirri mynd sem það er í dag verði senn á enda vegna kaupa Google á Motorola.

Whitman hélt ræðu á HP-ráðstefnu sem haldin er nú í Las Vegas þar sem helstu samstarfsaðilar HP eru samankomnir. Whitman lofsamaði að sjálfsögðu webOS-stýrikerfið sem mun verða 'open-source'-stýrikerfi á komandi hausti og taldi hún að það sé alveg pláss fyrir enn eitt snjallsímastýrikerfið á markaðnum.

Hinsvegar vöktu orð hennar um Android-stýrikerfið talsverða athygli og spurning hvort að Whitman sé að hitta naglann á höfuðið með framtíðarhorfur stærsta snjallsímastýrikerfisins. Whitman ræddi um iOS-stýrikerfið og kosti þess og galla, helst þá að það væri lokað og í raun bara Apple sem hefði eitthvað um það að segja í framleiðslu sinni. Að auki minntist hún á stærsta vandamál Android-stýrikerfisins sem er hversu brotakennt (fragmented) það er en margar útgáfur af Android-kerfinu frá mismunandi framleiðendum með mismunandi vélbúnaðarkröfur gerir forriturum erfitt fyrir með að búa til eina samhæfða útgáfu af forriti fyrir Android-notendur. Hinsvegar eru það síðan orð hennar um Android, Google og Motorola sem vert er að taka eftir.

Whitman telur að með kaupum Google á Motorola þá stefni Android-stýrikerfið í sama farveg og iOS-stýrikerfið frá Apple, þ.e. að það verði bara einn stór framleiðandi á Android-vörum og að það verði Motorola. Google muni á einhverjum tímapunkti takmarka notkun á Android-stýrikerfinu til annarra framleiðenda og að það sé fremur líkleg þróun.

Ljóst er að Google er í mun meira mæli að horfa í áttina að eigin vélbúnaðarframleiðslu og í því skyni eru kaup fyrirtækisins á Motorola skiljanleg. Þrálátur orðrómur hefur verði á kreiki um að Google sé að þróa eigin spjaldtölvu og síðast í gær bárust þær fregnir að Samsung væri hætt við að þróa arftaka Samsung Galaxy Nexus sem er nýjasti Google-síminn og kom út fyrir jól.

Það eru því áhugaverðir tímar framundan og ljóst að staðan á snjallsímamarkaðnum gæti tekið örum breytingum á næstu misserum ef fram heldur sem horfir.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Android 5.0 Jelly Bean vćntanlegt á 2Q 2012?
16. feb 2012 | 15:40 | Flokkur: Símar, Tölvur, Nýjungar, Orđrómur, Android,

Sterkar heimildir eru fyrir því að Google ætli að setja Android 5.0 í loftið strax á 2Q 2012.

Það varla sem að frostið sé að renna af Android 4.0 Ice Cream Sandwich þegar það berast fregnir af nýrri uppfærslu á Android-stýrikerfinu. Vinnuheitið á þeirri uppfærslu nefnist Jelly Beans en samkvæmt áreiðanlegum heimildum mun Android 5.0 verða hugsað fyrir snjallsíma, spjaldtölvu og litlar nettölvur.

Við það bætist að mjög líklega verður dual-boot stuðningur til staðar þar sem hægt verður að keyra upp Android eða Chrome-stýrikerfið frá Google.

Áhugi fyrir Chrome-stýrikerfinu hefur verið takmarkaður fram að þessu en þetta stýrikerfi er fyrst og fremst hugsað fyrir léttar og meðfærilegar nettölvur og er það að miklu leyti keyrt á Netinu bara, þ.e. upplýsingar og gögn eru geymd á Netinu en ekki í tölvunni.

Með Android 5.0 vonast þá Google til þess að Chrome OS eins og það er nefnt nái einhverju flugi.

Horft er á dagsetningu 27. júní sem mögulegan kynningardag en þá mun Google IO-ráðstefnan fara fram og hefur Google notað þann vettvang í gegnum tíðina til þess að kynna tækninýjungar.

Nú þegar er aðeins 1% af þeim Android-símum sem eru í umferð með Android 4.0 þannig að það er spurning hvort tækniheiminum finnist vera of skammt á milli þessara stóru uppfærslna?

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Ćtlar HTC ađ breyta um nöfn á símunum sínum?
16. feb 2012 | 14:40 | Flokkur: Símar, Nýjungar, Orđrómur, HTC, Android, Windows Phone,

HTC mun að öllum líkindum opinbera nýjar nafngiftir á snjallsíma-línu sinni á MWC 2012.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum mun HTC taka upp nafnið One á farsímalínunni sinni og setja síðan viðeigandi bókstaf fyrir hvern og einn síma.

Sagan segir að HTC muni kynna þrjá nýja snjallsíma á MWC 2012 og að þeir muni heita HTC One X, HTC One S og HTC One V. Sagan segir að HTC One X verði HTC Edge sem verður fyrsti fjórkjarnasíminn frá HTC, HTC One S sé hinn víðfrægi HTC Ville sem hefur lekið jafnmikið og ryðgaður togari út á Netið upp á síðkastið og svo er það HTC One V sem mun verða sími í svipaðri líkingu og HTC Rhyme nema með Android 4.0.

Lítið annað er vitað um fyrirætlanir HTC á MWC 2012 en hjá flestum ætti ný lína eins og þessi að gera talsverða lukku.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Co.DESIGN lofsamar Nokia Lumia 800
16. feb 2012 | 09:34 | Flokkur: Símar, Nýjungar, Nokia, Windows Phone,

Orðspor Nokia Lumia 800 fer víða um heim og nýjasta innleggið í umræðunni um þennan síma kemur frá hönnunargúrúinum Gadi Amit.

Amit lítur svo á að með Nokia Lumia 800 hefur Nokia tekist að skáka Apple í hönnun sinni á iPhone og að þessi sími sé hið fullkomna jafnvægi milli vélbúnaðarhönnunar og hugbúnaðarhönnunar þar sem hann sparar ekki lofið á Windows Phone-stýrikerfið og þá sérstaklega Metro-viðmótið.

Amit telur að Nokia hafi sýnt ákveðið frumkvæði og kjark í þessari hönnun þar sem flestir framleiðendur virðast elta það sem Apple er að gera með sína formföstu kassahönnun. Á meðan aðrir eru í þeim leik þá tekst Nokia það sem öðrum hefur ekki tekist; að búa til ávalar línur á símtækinu sem ná að falla fullkomlega þétt upp að skjánum og mynda þannig heildstætt útlit.

Svo það sé vitnað beint í orð Gadi Amit: "Let me be clear, Nokia’s phones are better than Apple’s, both in terms of physical and digital design. Supple, amiable, vibrant, and durable, the Lumia 800 and the slightly larger 900 are the new kings of smartphone design."

Hægt er að lesa umfjöllun hans með því að smella hér.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Myndir af BlackBerry 10 leka út
15. feb 2012 | 15:25 | Flokkur: Símar, Nýjungar, Orđrómur,

Myndir af hinu væntanlega BlackBerry 10-stýrikerfi hafa lekið út á Netið.

 

BlackBerry 10 er hið væntanlega stýrikerfi sem BlackBerry er að binda allar sínar vonir við og er það væntanlegt á fyrstu símtækin undir lok þessa árs.

Eins og sést á þessum myndum þá svipar þetta viðmót í stýrikerfinu mikið til þess sem þekkist á markaðnum í dag og þá kannski sérstaklega í MeeGo og iOS-stýrikerfinum.

Sem stendur er BlackBerry líklegast aðeins að vinna að einu símtæki sem er með snertiskjá og hefur vinnuheitið BlackBerry London en sagan segir að tækið sé búið að fara í gegnum miklar breytingar innan herbúða RIM og að það komi til með að vera það tæki sem BlackBerry mun veðja á að muni bjarga fyrirtækinu úr þeirri gryfju sem það er komið í núna.

Hvort að það verði síðan raunin mun skýrast væntanlega fyrir næstu áramót.

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af stýrikerfinu:

 

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Apple fer fram á rannsókn á vinnuađstćđum í Asíu
15. feb 2012 | 13:31 | Flokkur: Símar, Tölvur, Fréttatilkynning, iOS,

Apple hefur ráðið óháðan eftirlitsaðila til þess að rannsaka vinnuaðstæður og ásaknir um óviðeigandi framkomu við starfsmenn í framleiðsluverksmiðjum í Asíu.

Mikil umræða hefur verið í Bandaríkjunum að undanförnu um vinnuaðstæður starfsfólks í verksmiðjum í Asíu sem starfa sem undirverktar fyrir Apple en fyrirtækið lætur framleiða vörur sínar í þessari heimsálfu, að mestu leyti í Kína.

Nú hefur Apple samþykkt að ráða samtök sem nefnast Fair Labor Association (FLA), sem staðsett eru í Washington í Bandaríkjunum, til þess að kanna aðstæður og gera úttekt á framleiðslunni og benda á það sem má betur fara.

Er Apple að láta undan miklum þrýstingi sem verið hefur á fyrirtækið að undanförnu og hefur sá þrýstingur m.a. endurspeglast í fjöldamótmælum fyrir utan verslanir Apple í Bandaríkjunum og víða um heim. Tim Cook, forstjóri Apple, hafði áður sagt að Apple væri ekki að beita óeðlilegum þrýstingi á framleiðendur sína til þess að ná niður kostnaði.

Þrátt fyrir að aðrir raftækjaframleiðendur séu að nota í mörgum tilvikum sömu framleiðendur og Apple er að nota þá hefur athyglin beinst að miklu leyti að Apple þar sem fyrirtækið er langumsvifamesti aðilinn á þessu markaði og er talið að um 700.000 starfsmenn hjá ýmsum framleiðslufyrirtækjum í Asíu séu gagngert að starfa fyrir Apple sem undirverktakar. 65.000 starfa síðan með beinum hætti hjá Apple.

Það mun því verða áhugavert hvort að þessi rannsókn muni skila sér í bættum starfsaðstæðum fyrir vinnufólk sem starfar í þessum verksmiðjum en staðfest er að allaveganna 2 dauðsföll megi rekja til lélegra vinnuaðstæðna og einnig er fjöldi starfsmanna sem hafa framið sjálfsmorð vegna álags í störfum þeirra.

Apple hefur í gegnum tíðina státað sig af því að geta boðið upp á ótrúlegar vörur á frábæru verði en það er spurning hvort að endurbætur á starfsaðstæðum í Asíu verði til þess að Apple þurfi að endurskoða verðskrá sína og hugsanlega vöruframboð í framtíðinni.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Er ţetta fyrsti Intel-síminn frá Motorola?
15. feb 2012 | 10:39 | Flokkur: Símar, Nýjungar, Orđrómur, Android,

Mögulega hafa lekið út myndir á Netið af fyrsta Motorola-símanum sem keyrir á hinum víðfræga Medfield-örgjörva frá Motorola.

Við sögðum ykkur frá því í janúar að á CES 2012 höfðu Motorola og Intel gert með sér samkomulag um að Motorola myndi nota örgjörva og aðrar lausnir frá Intel í framleiðslu sinni á snjallsímum.

Nú virðist sem að fyrstu myndirnar af slíkum síma hafi lekið út á Netið.

Um er að ræða Android 4.0-síma sem er að keyra á Medfield-örgjörvanum sem talið er að sé að keyra á 1,6 GHz og að hann sé ekki tvíkjarna enn sem komið er. Þrátt fyrir það telja sérfræðingar að Medfield-örgjörvinn einn og sér sé umtalsvert betri en tvíkjarna örgjörvnar sem eru í boði í dag.

Fram til þessa hafa svokallaðar ARM-örgjörvar verið allsráðandi á spjaldtölvu- og snjallsímamarkaðnum en nú gæti landslagið farið að breytast með Medfield-örgjörvanum frá Intel sem er sérstaklega hannaður fyrir slík tæki.

Hvort að þetta tæki verði til þess að snúa örgjörvaheiminum á hvolf skal ósagt látið en líklegt þykir að Motorola muni kynna eitthvað frekar varðandi ráðagerðir sínar með Medfield á MWC 2012 undir lok mánaðarins.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Kaup Google á Motorola samţykkt
15. feb 2012 | 08:25 | Flokkur: Símar, Tölvur, Fréttatilkynning, Android,

Evrópusambandið og dómsmálaráðuneytið í Bandaríkjunum hafa samþykkt kaup Google á Motorola og heimilað samruna þessara fyrirtækja.

Án efa er þessi niðurstaða mikill léttir fyrir bæði fyrirtækin en fyrirfram var löngu búið að ganga frá öllum innanbúðarmálum sem snúa að þessum kaupum og stjórnir fyrirtækjanna búnar að taka ákvörðunina fyrir og samþykkja hana.

Er þetta því þvert á óskir Consumer Watchdog sem hafði varað við þessum samruna og þeim áhrifum sem það gæti haft á neytendur.

Evrópusambandið og dómsmálaráðuneytið í Bandaríkjunum (DOJ) höfðu unnið náið að rannsókn málsins og gáfu því út tilkynningu þess efnis að ekkert stæði í vegi fyrir þessum samruna.

Google gerði tilboð í Motorola í ágúst á síðasta ári og er því málið búið að vera í vinnslu hjá opinberum aðilum í talsvert langan tíma. Vildu sumir jafnvel meina að Google hefði greitt yfirverð fyrir Motorola en það mun vera vegna þess að þáverandi forstjóri Motorola, Sanjay Jha, náði að 'plata' Google-menn með þeim hætti að hann lét sem að aðrir aðilar hefðu áhuga á að kaupa fyrirtækið.

Eflaust þýðir þetta að nú mun Google fara á fullt við að hanna og þróa tæki sem hugsanlega Motorola mun framleiða en fregnir af slíkum búnaði eru nú þegar farnar að leka út.

Svo er spurning hvenær næsta Google-flaggskipið í Android-símum kemur en það er næsta víst öruggt að Motorola muni framvegis sjá um framleiðslu á slíkum tækjum. Fram að þessu hafa HTC og Samsung framleitt sitthvorn Google-símann.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Lumia-línan frá Nokia fer í sölu 2. mars á Íslandi
14. feb 2012 | 13:50 | Flokkur: Símar, Nýjungar, Fréttatilkynning, Nokia, Windows Phone,

Búið er að staðfesta að Lumia-línan frá Nokia kemur í sölu á Íslandi þann 2. mars nk.

Fréttatilkynning var send út í dag á vegum Hátækni og Nokia þess efnis að Lumia-línan frá Nokia komi í sölu hérlendis og fari í sölu hjá öllum helstu endursöluaðilum á símum á Íslandi þann 2. mars. Eru þetta því fyrstu Windows Phone-símarnir frá Nokia sem komu í sölu á Íslandi.

Um er að ræða þá tvo síma sem búið er að kynna fyrir Evrópu en það eru Nokia Lumia 800 og Nokia Lumia 710. Báðir þessir símar voru kynntir formlega á Nokia World 2011 og hafa vakið mikla lukku þar sem þeir hafa farið í sölu víða um heim.

Það þarf varla að fjölyrða mikið um Nokia Lumia 800 en hönnunin er sú sama og á Nokia N9 sem hefur vakið gríðarlega athygli hjá öllum helstu fagaðilum í tækniheiminum enda er hér á ferð glæsilegur sími sem keyrir á Windows Phone-stýrikerfinu frá Nokia.

Áætla má að Nokia Lumia 800 komi til með að kosta í kringum 90 þús. kr. m. vsk. og að Nokia Lumia 710 muni kosta um það bil 60 þús. kr. m. vsk.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
Mun Nokia kynna 6 nýja síma á MWC 2012?
14. feb 2012 | 08:13 | Flokkur: Símar, Nýjungar, Orđrómur, Nokia, Windows Phone,

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum mun Nokia líklegast kynna 6 ný símtæki á Mobile World Congress-ráðstefnunni sem fer fram undir lok þessa mánaðar í Barcelona.

Þær upplýsingar sem hafa lekið út á Netið kveða á um að Nokia muni kynna 3 hefðbundna S40-síma, þ.e. venjulega farsíma sem verða mjög líklega hluti af Asha-línunni en þeir mun heita Nokia Asha 202, 203 og 302. Lítið annað er vitað um þessa síma en líklegt þykir að þeir verði í mismunandi formi, jafnvel að þarna sé hugsanlegur arftaki hins geysivinsæla Nokia C3-00 sem slegið hefur í gegn hérlendis.

Síðan eru líkur á að 2 Windows Phone-símar verði kynntir, annarsvegar mun verða kynnt formlega Evrópu-útgáfan af Nokia Lumia 900 sem mun líklegast vera án 4G-stuðnings og svo mun verða kynntur sími sem heitir Nokia Lumia 610 sem mun verða mjög ódýr Windows Phone-sími og verða líklegast ódýrari en Nokia Lumia 710 sem er væntanlegur hingað til lands í næsta mánuði ásamt Nokia Lumia 800.

Síðast en ekki síst mun verða kynntur arftaki Nokia N8 sem heitir Nokia 808 PureView en það mun verða sími sem keyrir á Symbian-stýrikerfinu og vera með öllu því helsta sem öflugur snjallsími getur boðið upp á dag. Óstaðfestur orðrómur er á kreiki um að það verði 16 megapixla myndavél í þessum síma ásamt 64GB minni og 1,2 GHz tvíkjarna örgjörva en það skal undirstrikað að ekkert hefur verið staðfest enn í þeim efnum.

Það stefnir því í fjöruga MWC-ráðstefnu þetta árið og ef marka má þessar fregnir þá ætlar Nokia ekkert að gefa eftir í slagnum á snjallsímamarkaðnum.

Sjá meira
Magnús Viđar Skúlason
1 ár frá ţví ađ Nokia ákvađ ađ hefja samstarf viđ Microsoft
13. feb 2012 | 15:32 | Flokkur: Símar, Nýjungar, Nokia, Windows Phone, Microsoft,

Laugardaginn síðastliðin var liðið eitt ár frá því að Nokia tilkynnti á dramatískan hátt um að fyrirtækið ætlaði að hefja náið samstarf við Microsoft og nota Windows Phone-stýrikerfið sem sitt helsta snjallsímastýrikerfi.

Það voru spennuþrungnir dagarnir fram að fréttatilkynningunni frá Nokia en á fimmtudagskvöldið fyrir blaðamannafundinn, sem haldinn var 11. febrúar, var gengið frá helstu atriðum sem snéru að þessu samstarfi.

Dagana áður voru miklar umræður um hvað væri í gangi innanbúða hjá Nokia og lak m.a. út frægt bréf sem Stephen Elop, forstjóri Nokia, sendi á alla starfsmenn fyrirtækisins þar sem hann ræddi opinskátt um stöðu mála.

Margir höfðu hreinlega velt því fyrir sér hvort að Nokia ætlaði að hella sér út á Android-markaðinn en eins og kom síðar í ljós þá gat Nokia ekki sætt sig við stefnu Google varðandi Android og sá fram á að geta sniðið Windows Phone-stýrikerfið betur að sínum þörfum.

Þann 11. febrúar 2011 var síðan haldin blaðamannafundur í London þar sem tilkynnt var um þessa ákvörðun sem ætti að vera öllum kunn nú. Það er áhugavert að lesa og pæla í því sem skrifað var í kjölfarið og er m.a. hægt að sjá færslu Tæknibloggsins um þessa ákvörðun hérna og svo er hægt að smella hér til þess að sjá blaðamannafundinn þar sem Stephen Elop og Steve Ballmer, forstjóri Microsoft, fara yfir málin.

Nú ári síðar hefur Nokia kynnt Lumia-línuna en í henni eru þrír Windows Phone-símar; Nokia Lumia 710, Nokia Lumia 800 og Nokia Lumia 900 og hafa þeir farið í sölu víða um heim frá því að fyrstu tveir símarnir í þessari línu voru kynntir á NokiaWorld 2011 í október á síðasta ári.

Nú styttist í að Lumia-línan komi í sölu hérlendis og er það mat flestra að Nokia hafi tekist nokkuð vel til að byrja með í Windows Phone-væðingu fyrirtækisins en það er síðan spurning hvað kemur næst frá fyrirtækinu og horfa margir í áttina að MWC 2012 sem mögulegum vettvangi þar.

Sjá meira
Fyrri fćrslur

Leita í bloggfćrslum