Hátækni var stofnað árið 1985. Velta Hátækni hefur vaxið mjög hratt síðustu ár. Hátækni er í eigu Olís (Olíuverzlun Íslands hf.), sem er eitt stærsta olíudreifingarfyrirtæki á Íslandi og eitt af 30 stærstu fyrirtækjum landsins. Í dag starfa 26 manns hjá Hátækni.
Hátækni hefur allt frá stofnun átt farsælt samstarf við marga af stærstu og þekktustu framleiðendum á hverju sviði fyrir sig. Stöðugleiki hefur einkennt samstarfið öll þessi ár og árangurinn verið jöfn og góð aukning á viðskiptum, báðum aðilum til hagsbóta.
Hlutverk og gildi Hátækni
Stefna Hátækni er að vera í fararbroddi íslenskra fyrirtækja á sviði virðisaukandi hátæknilausna sem auka lífsgæði fólks. Hátækni sér fyrirtækjum og einstaklingum fyrir vönduðum heildarlausnum. Hátækni hefur á að skipa öflugu starfsfólki sem myndar sterka liðsheild og þjónar viðskiptavinum með gæði, þekkingu og heilindi að leiðarljósi.
Hátækni
Hvergi í heiminum er farsímaeign eins mikil og á Íslandi, á hverju heimili eru 3-4 sjónvarpstæki og svona mætti lengi halda áfram. Þorsti landsmanna í afþreyingu, upplýsingar og tækninýjungar er nær óslökkvandi og Íslendingar gera ávallt kröfu um það nýjasta og besta sem til er hverju sinni.
Uppgangur og vöxtur Hátækni endurspeglar þetta. Í þessu umhverfi þrífumst við og leggjum því mikinn metnað í að uppfylla óskir kröfuharðra viðskiptavina. Fyrirtækið er mjög framsækið, selur einungis vönduð vörumerki og vandar valið á samstarfsaðilum sínum. Við sjáum fram á mikla vaxtarmöguleika á markaði sem er sólginn í afþreyingu og opinn fyrir tækninýjungum. Þess vegna er Hátækni eftirsóknarverður samstarfsaðili.
Innan Hátækni er fjöldi sérhæfðra starfsmanna sem annast alla þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina. Mikið er lagt upp úr sérþekkingu starfsmanna á hverju sviði til að viðskitpavinir Hátækni geti fengið haldbærar og góðar upplýsingar og ráðgjöf um val á lausnum.
Hvað er Hátækni?
Starfsemi Hátækni skiptist í þrjú svið, þau eru Sölusvið, Rekstrarsvið og Hústæknisvið.
Sölusvið
Hátækni ber ábyrgð á innflutingi og dreifingu á vörum til endursöluaðila um allt land. Meginstarfsemi Hátækni felst í dreifingu á vörum til endursöluaðila um allt land og er fyrirtækið meðal þeirra öflugustu á markaðnum. Hátækni rekur öflugt vöruhús. Endursöluaðilar og aðrir viðskiptavinir fyrirtækisins geta því ávallt gengið að traustri lagerstöðu sem viðheldur góðu og stöðugu framboði á vörum í þeirra eigin verslunum.
Hátækni er umboðsaðili Nokia og stærsti dreifingaraðili farsíma og aukahluta á Íslandi. Íslendingar eru sem fyrr með heimsmet miðað við höfðatölu í farsímaeign og oftar en ekki vilja allir eiga nýjasta og flottasta símann á markaðnum hverju sinni.
Hátækni rekur einnig glæsilega verslun miðsvæðis í Reykjavík þar sem einstaklingar geta valið úr góðu úrvali af farsímum, talstöðvum, sjónvörpum, heimabíóum, hátölurum, mögnurum og Mp3 spilurum svo fátt eitt sé nefnt. Í versluninni er einnig Hljómskálinn þar sem viðskiptavinir geta kynnst því af eigin raun hvernig bestu mögulegu mynd- og hljómgæði renna saman í ógleymanlega upplifun.
Hátækni leggur mikla áherslu á að bjóða upp á sérlausnir fyrir nútíma heimili. Hönnun skipar æ ríkari sess á heimilum og það á ekki síður við um tækni- og stjórnlausnir.
Rekstrarsvið
Samhliða sölusviðinu er Hátækni einnig með rekstrarsvið sem sér um alla pantanavinnslu og samskipti við erlenda birgja sem og umsýslu í kringum vörudreifingu og lagerhald. Einnig sér rekstrarsvið um tollafgreiðslu á innfluttum vörum og einnig áætlanagerð fyrir komandi sölutímabili. Undir rekstrarsviðið heyrir einnig fjármálastjórn og aðrar almenns reksturs fyrirtækisins.
Þjónustuverkstæði Hátækni heyrir undir rekstrarsviðið en verkstæðið sér um viðgerðir á farsímum og einnig umsýslu í kringum þjónustu- og ábyrgðarmál á þeim vörum sem Hátækni flytur inn og dreifir.
Hústæknisvið
Hústæknisvið er má segja elsti starfandi hluti Hátækni en þegar Hátækni var stofnað árið 1985 var aðalsstarfssemi fyrirtækisins á loftræstisviðinu. Hátækni hefur um árabil rekið eina þekktustu loftræstideild landsins. Loftræstideild Hátækni vinnur með mörgum af helstu verkfræðistofum landsins við hönnun loftræsti og hitakerfa í smærri og stærri byggingar.
Hústæknisvið Hátækni hefur unnið að hönnun og uppsetningu á mörgum af stærstu loftræstikerfum landsins og má þar nefna m.a. loftræstingu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og í Kringlunni. Loftræstibúnaðurinn er einkum frá Honeywell og Fläktwoods.
Þjónustusvið
Þjónustumiðstöð Hátækni er þungmiðja Hátækni í þeirri notendaþjónustu og ábyrgðaviðgerðum sem snúa að þeim vörum sem Hátækni flytur inn og selur. Helsta starfssemi þjónustumiðstöðvar Hátækni eru ábyrgðaviðgerðir á Nokia-farsímum. Að auki bakvinnsla innan þjónustumiðstöðvarinnar sem sérhæfir sig í birgðastýringu á varahlutum, umsýslu með aðrar vörur sem Hátækni flytur inn en er ekki gert við hér á landi o.s.frv.
