Án efa er Nokia N8 einn magnaðasti sími Nokia hefur sent frá sér fyrr og síðar. Hér er á ferðinni besti myndavélasíminn á markaðnum í dag en Nokia N8 er með 12 megapixla myndavél með Xenon-flassi og tekur upp myndskeið í HD-upplausn.
Fullbókað er á námskeiðið sem er 16. mars, vegna fjölda fyrirspurna og áhuga þá munum við halda annað námskeið fimmtudaginn 17. mars. Námskeiðið hefst kl. 12:00 og er áætlað að því sé lokið kl. 12:30 og svo í framhaldinu er nægur tími til þess að spjalla og ræða um Nokia N8.
Farið verður yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga við notkun á þessum síma og rennt yfir hvernig Symbian-stýrikerfið virkar í þessum síma en þetta er fyrsti síminn sem kom frá Nokia sem keyrir á þessari nýju útgáfu af þessu stýrikerfi.
Námskeiðið gagnast líka öðrum Nokia-notendum sem eru með síma með sama stýrikerfi en símar á borð við Nokia C7 og Nokia E7 eru með þetta stýrikerfi.
Skráning fer hér fram fyrir neðan, bent er á að sætaframboð er takmarkað.
