Kristján starfaði sem framkvæmdastjóri Radiomiðunar hf. frá árinu 1985 til ársins 2000. Frá 2000 til 2006 var Kristján starfandi stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins Eykis hf. Kristján hefur verið í stjórnum ýmissa fyrirtækja, en þau eru: Radiomiðun, Hátækni, Ísmar, Íslensk fjarskipti, Informatique et Mer og MapMedia í Frakklandi, VBS fjárfestingabanki, Teleserve og TeleF í Færeyjum, Íslandssíma (nú Vodafone), Lína.net og Greind. Þá má nefna að Kristján var formaður bygginganefndar Þróttar 1997-1999 og er núverandi formaður AFS á Íslandi.